Spa og snyrtimeðferðir

Blue Lagoon býður einstakar spa meðferðir sem byggja á Blue Lagoon jarðsjónum og virkum efnum hans kísil, steinefnum og þörungum auk vikurs úr hrauninu sem umlykur Bláa Lónið. Meðferðirnar eru þróaðar af sérfræðingum Bláa Lónsins.

Fjölbreytt úrval spa og snyrtimeðferða eru í boði og má þar sérstaklega nefna kísil vafningsmeðferð ásamt líkams- og andlitsnuddi; nærandi og slakandi þörungameðferð; meðferð þar sem húðin er slípuð með vikri úr íslensku hrauni og Blue Lagoon nudd. Nuddið er þróað af sérfræðingum okkar sem hafa valið strokur og þróað tækni til að hámarka virkni meðferðanna.

Spa og snyrtimeðferðir í Reykjavík

Bókanir
Bókaðu tíma í Blue Lagoon spa í síma 414 4004 eða með því að senda tölvupóst á bluelagoonspa(at)bluelagoonspa.is 

ATH! MEÐLIMIR HREYFINGAR FÁ 20% AFSLÁTT AF SNYRTI-, NUDD- OG SPAMEÐFERÐURM.

Gefa þarf upp kortanúmer þegar bókuð er Blue Lagoon spa meðferð.
Ef af einhverjum ástæðum þarf að afbóka þarf að gera það með 24 tíma fyrirvara. Að öðrum kosti þarf að greiða 50% af verðgildi bókunar.